Um styrki

Stjórn Vina Vatnajökuls stefnir að því að úthluta styrkjum að lágmarki einu sinni á ári.  Stjórnin skipar úthlutunarnefnd til að meta umsóknir.

Stefnt er að því að auglýsa eftir fyrstu styrkjum í september 2009.

Hvað styrkja samtökin?

Samtökin styrkja rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið þeirra náttúrufyrirbæra og þeirrar sögu sem Vatnajökulsþjóðgarður hefur að geyma.

Samtökin vilja setja í forgang verkefni sem stuðla að:

  • Aukinni þekkingu almennings á þeirri náttúru og sögu sem þjóðgarðurinn hefur að geyma
  • Samspili byggðarlaga innan þjóðgarðsins
  • Samspili útivistar, menningar og Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Tengslum barna og unglinga við náttúruna
  • Auknum skilningi umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu
Send




Leita á vefnum


Tungumál


This website is built with Eplica CMS