Úthlutunarreglur

Stjórn Vina Vatnajökuls stefnir að því að úthluta styrkjum að lágmarki einu sinni á ári.  Stjórnin skipar úthlutunarnefnd til að meta umsóknir.

Stefnt er að því að auglýsa eftir fyrstu styrkjum í byrjun árs 2010.

Hvað styrkja samtökin?

Samtökin styrkja rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið þeirra náttúrufyrirbæra og þeirrar sögu sem Vatnajökulsþjóðgarður hefur að geyma.

Samtökin vilja setja í forgang verkefni sem stuðla að:

  • Aukinni þekkingu almennings á þeirri náttúru og sögu sem þjóðgarðurinn hefur að geyma
  • Samspili byggðarlaga innan þjóðgarðsins
  • Samspili útivistar, menningar og Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Tengslum barna og unglinga við náttúruna
  • Auknum skilningi umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu

Einstaklingar, samtök/tengslanet, stofnanir og auk þess einkareknar og opinberar stofnanir geta sótt um styrki. Umsækjendur mega búa hvort heldur er innan eða utan Íslands.

Nánari leiðbeiningar og úthlutunarreglur ásamt rafrænu umsóknareyðublaði verður birt hér á heimasíðunni þegar að auglýst verður eftir umsóknum.

Send



Apply for a Grant


Leita á vefnum


Tungumál


This website is built with Eplica CMS